Niđurtalningin

Upptalningin

Grétar í Amríku

Ef ţú vilt senda mér pakka:
Grétar Jónsson
3728 NE 17th Ave
Portland, OR 97212-1333

Ef ţú ţarft ađ hringja:
Gsm : +1 503 989 9894
Heim : +1 503 914 5846

Klukkan hjá mér er -8 GMT
(-7 núna, Daylight Savings)
Ísland er 0 GMT

Shanghai!

18. febrúar 2007 klukkan 18:47
Ég uppgötvaði það að Portland er svona 10 sinnum svalari borg á föstudaginn var!
en..
Á sunnudaginn síðasta var District í keilu, þ.e. allir skólarnir á ákveðnu svæði kepptu sín á milli til þess að úrskurða hvaða lið færi í fylkismótið. Við vorum allir rosa spenntir, okkur var boðið í morgunmat og allir voru rosalega jolly. Það var þó ekki nóg. Allir spiluðu illa og töpuðum við öruggt! Stelpuliðið vann þó og ætti ég að vera núna að hvetja þær í fylkismótinu..
Vikan gekk svo nokkuð rólega þar til á föstudag. Hræðilegur skóladagur! Ekki bara fyrir mig heldur fyrir alla! Það var svona Black-American fundur um morguninn. Allur skólinn var þarna þar sem þetta var skylda. Þeir voru með einhvern guestspeaker sem byrjaði að tala fyrir miðjum fundinum en ekki fór það vel. Hún var að tala um þrælahald og hvað svarti hafi haft það ömurlegt. Hún var með staðreyndir, jú, en eins og hún talaði, eins og hún kom þessu út úr sé þá var þetta hreinn og beinn rasismi, gagnvart öllum nema svörtum, ég svitnaði, mér leið eins og ég væri gyðingur á nasistafundi! Þetta er ekkert grín, hún talaði eins og að eftir 100 ár þá verða svartir með hvíta þræla! Hún var svo reið útí allt og alla! óútskýranlegt, ég ætla að reina að fá hljóðtöku af þessi og þá get ég leyft ykkur að heyra þetta. Restin af skólanum fór í rifrildi, slagsmál og grátur, allir voru hundfúlir útí þessa konu, líka svartir, þar sem hún var að "reprisenta" þá!

Um kvöldið fórum við svo niðrí bæ, við áttum bókaða ferð um "shanghai tunnels". Þessi göng er svona neðanjarðarborg. Engin venjuleg neðanjarðarborg, hún var notuð til þess að ræna fólki! Þetta hófst árið 1850. Þetta virkaði þannig að á börum og búllum voru göt í gólfum, svo þegar fólk var orðið blindfullt þá hringdu barþjónarnir bjöllum og fólkið niðri opnaði falldyrnar og niður datt fólkið. Þeim var svo haldið föngum í klefum og síðan seldir til sjós.

Tekið að wikipedia
----------------------------
The Portland Underground, or the Shanghai Tunnels as they are more commonly known, are a group of passages running underneath Old Town/Chinatown down to the central downtown section of Portland, Oregon, United States. The tunnels originally connected the basements of many downtown hotels and bars, to the waterfront of the Willamette River. They were originally built to move goods from the ships docked on the Willamette to the basement storage areas. Around the end of the 19th century they were used to kidnap or "shanghai" unsuspecting laborers and sell them as slaves to waiting ships at the waterfront. The most active lout being "Shanghai Jack". Ship captains would contact Jack with their needs and he would arrange the "shanghai". Victims were drugged or knocked out, taken through one of the trap doors (or deadfalls), and held in a prison cell while they waited to be shipped off. This earned Portland the reputation as the most dangerous port on the West Coast, if not the world, in the early 1900s, as well as the nicknames "Unheavenly City" and "Forbidden City." Later, during Prohibition, the tunnels were inhabited by bars that literally went underground to sell alcohol.
---------------------------------
Það sem er ekki sagt er að árlega voru fangaðir 1500 til 3000 manns!
Þessi starfsemi hætti svo árið 1941 þar sem það voru ekki fleiri menn til þess að ræna þar sem þeir voru allir í hernum.
Núna er þetta draugalegur staður, mikið af atvikum sem ekki er hægt að útskýra gerast þarna niðri.

Svo hefur helgin bara verið róleg...

Jæja, ætla nú að fara að klæða mig og fara að hvetja stelpurnar :)
Grétar Jónsson

frábćr vika!

11. febrúar 2007 klukkan 00:59
Já, síðasta vikan hefur verið geðveikt skemmtileg, frá og með fimmtudag :p
Jú, á fimmtudag fór ég á minn fyrsta "háskóla-íþrótta-viðburð". Ég sá nú ekki mikið af körfuboltanum sjálfum, klappstýrurnar voru eins og segull á augun mín! já og við töpuðum.. En það var nú meira sem gerðist á þessum leik, ég of Alex frá þýskalandi vorum spurðir ef við vildum gera svona show í einum fjórðungi, leikurinn var þannig að annar okkar var blindaður, alex, og hinn átti að hafa fötu á hausnum og grípa þessar dúkku-skjaldbökur, ég, við fengum 30 sek til að grípa 3 en við vorum sitkvorumeginn á völlinum. Ég greip því miður bara 2 en ég heyrði á fólkinu svona "úúú" alltaf því ég var svo nálægt. Svo var einhver mamma sem átti strák sem var að spila sem sagði okkur að þetta hefði verið það skemmtilegasta á árinu!

Á föstudag var suprize partý fyrir Birgit frá Noregi. hún er 18 í dag. Svo eftir skólann í gær fór ég og Marion frá Frakklandi, í mollið til að leita að gjöf. Endaði með því að við keyptum gullfisk! fyrir $25 fengum við allar græjurnar og gullfisk svo það var bera heavy flott. Svo voru örugglega um 40-50 manns í veislunni, og já, henni brá ekkert smá þegar hún kom heim frá video-leigunni.

Svo í dag fór ég og Marion niðrí bæ. Við fórum í prufur fyrir einhverja bíómynd en þeim vantar aukafólk. Svo fórum við í ráðstefnuhöllina og þar var eitthvað svona "I love you" dæmi, þá fór maður inn og sagði fyrir framan myndavél, ég elska þig. Ég sagði það náttla á íslensku, ég bauðst nú til að segja það á 5 öðrum túngumálum en þeir vildu það ekki..

Svo í kvöld fer ég í aðra afmælisveislu en Kris, managerinn hjá draugahúsinu er 22.
Anyways, bæ
Grétar Jónsson

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hvađ er ég líklegastur til ađ vera sendur heim fyrir?

Innskráningar kubbur