Mjög svo ágćtt?
31. janúar 2007 klukkan 13:52
Síðasta vika hefur verið mjög svo ágæt?
Á laugardaginn þurfti ég að fara á AFS fund, eitt af þessum stóru fundum þar sem allir skiptinemarnir hittast og ræða um dvöl sína hérna.. Nokkrir nýjir skiptinemar kynntir, þeir sem eru frá Eyjaálfu og þeir sem eru hérna í hálfs árs dvöl.
Svo vorum við vakin upp klukkan 5:30, þá var skjótur morgunverður og svo var okkur hent uppí skólabíl með engum hita á og okkur var keyrt uppí fjall, ss. skíðaferð. Við fengum alveg fullkomið skíðaveður, svo heitt að þegar ég var að bíða eftir því að komast í lyftuna stóð ég í bolnum, bætti svo einni peysu á mig þegar ég var uppi á topp, ég fór ss. á bretti í fyrsta sinn í alveg örugglega 4 ár eða meira, ég reyndi að halda uppi við einhvern svía, svisslending, frakka og 2 ítala, það var bara ekki að ganga, ég missti reglulega stjórn á mér og kolféll, allur líkaminn meira og minna marinn, stútaði á mér öxlinni rétt fyrir hádegi og gafst ég þá bara upp. Um hádegið fékk maður sér að éta og svo bara fór ég aftur í brekkuna, í þetta sinn ákvað ég að fara ekki með hinum í svörtu brekkurnar og tók bara minn hraða í þeim bláu, og fylgdu mér þjóðverji og frakki, og vitir menn, ég datt ekkert eftir það.
Ég tók nú með mér myndavélsem betur fer svo þið getið nú öfundað mig verulega mikið!

Anita frá Sviss og ég
Svo á mánudagsmorgni fór ég til hjúkrunar í skólanum, útaf öxlinni, hún var fín svo lengi sem að ég hreyfði mig ekki en ef að ég þurfti að gera eitthvað var það kvöl og pína. Hún gerði einhverjar rannsóknir og spurði mig svo hvort ég væri tryggður, ég svaraði því að ég væri tryggður uppá rúmar 70.000.000 kr. (1.000.000 USD) hún horfði á mig vantrúuð og muldraði svo að hún óskaði þess að hún værir svo mikils virði, svo sagði mér svo að fara í rönken þar sem bein í öxlinni gæti verið brotið, svo gaf hún mér 3 rauðar töfrapillur og svo fann ég lítið fyrir henni, ég nenni sko ekki að fara uppá gjörgæslu og eyða heilum degi þar enda líður mér betur í öxlinni núna...
Svo um kvöldið kom Justina, Við fórum á Winter formal. Það sem einkenndi þetta ball var að það voru um 4 hvítir drengir og um 150 svartir... Og vá, Dirty Dancing er sko ekkert það sem maður sér í sjónvarpinu, á þessu balli hölluðu drengirnir sér að veggnum, í svona 45° halla og svo nudduðu stelpurnar sér upp við þá, ekki leiðinlegt.

góða nótt!

Grétar Jónsson