Niđurtalningin

Upptalningin

Grétar í Amríku

Ef ţú vilt senda mér pakka:
Grétar Jónsson
3728 NE 17th Ave
Portland, OR 97212-1333

Ef ţú ţarft ađ hringja:
Gsm : +1 503 989 9894
Heim : +1 503 914 5846

Klukkan hjá mér er -8 GMT
(-7 núna, Daylight Savings)
Ísland er 0 GMT

Aumingja ég :)

27. september 2006 klukkan 23:06
Sorry, hvað ég er latur að blogga, hef bara verið eitthvað svo "upptekinn", skólinn, fótbolti, koma heim, sturta, kvöldmatur = uppgefinn!Annars er allt gott að frétta af mér og familíunni. Allt að stressast upp því það eru aðeins 9 vinnudagar í það að draugahúsið opnar og enn er mjög margt ógert, ég reyni að hjálpa þeim eins mikið og ég get, enda er það bara mjög gaman. Ég verð "walk around", í svona búningi eins og lukkudýr nema bara meira scary, það hlutverk er til þess að skemmta fólkinu sem býður í röðum eftir að kaupa miða. Ég ákvað að hætta í fótboltanum til þess að vera meira í draugahúsinu, auk þess hefði ég þurft að borga $175 fyrir fótboltann, nálægt 10 þús. Kalli) hefði ég haldið áfram og fótboltinn er haust-íþrótt og tímabilið að verða búið. En frá skólanum og til draugahússins tekur mig einn og hálfan tíma með strætó, og hefði ég ætlað að taka þátt í því og æfa fótbolta þá hefði það ekki verið hægt, því maður þarf að vera í búning og tilbúinn kl. 5 en æfing líkur ekki fyrr en 6. Skólinn minn er með keilulið, keila er vetrar-íþrótt svo ég ætla að vera í því, strákaliðið er víst ferlega lélegt en við erum með eitt besta stelpuliðið. Svo er planið á að fara í golf liðið í vor, því golf er jú vor-íþrótt :) Annars gengur skólinn vel, maður er farinn að "venjast" skólakerfinu, það verður samt eitt að tilhlökkunarefnunum mínu við það að koma heim, að fara í gamla góða kerfið.
Grétar Jónsson

Nćn ílleven

12. september 2006 klukkan 10:58
11. september. Bara ósköð venjulegur dagur hérna í Portland, ég heyrði ekki einu sinni minnst á árásirnar í allan dag!

Anyways
Skólinn er byrjaður, maður er bara að kinnast liðinu og svona. Svolítið skrítið kerfi í þessum skóla. Allir dagar eru eins það eina sem breytist eru tímarnir. Stundaskráin virkar bara á dagana! Mánudagar, þriðjudagar og föstudagar eru allir eins, Miðvikudagar hafa sína egin tíma og Fimmtudagar hafa sína eigin tíma. Allt mjög furðulegt.
Skólinn er svosem ágætur. Góðir kennarar en námsval er alveg hræðilegt! Það er ekkert hægt að velja um! Svo eru 3 skólar innan skólaveggjanna, hver hefur sína kennara, starfsfólk og nemendur. Þannig að ég get ekki farið í suma tíma því það er í öðrum skóla! Svona svipað og brautarkerfið heima, nema hérna þá máttu ekki taka áfanga af öðrum brautum.
Þetta var 3. dagurinn minn í skólanum í dag, og ég er að spá í að skipta...
Skólinn minn er með mikið af mimunandi fólki, meirihlutinn eru svartir og Mexikanar. Skólaumdæmið sem minn skóli ræður um er mjög fátækt hverfi. Ekki það að ég hafi eithvað á móti fátæklingum það er bara að skólinn fær ekki mikið income og þar af leiðandi er þetta ekki góður skóli.
Skólinn sem ég ætti að vera að fara í er mjög vel stæður skóli, mjög vel stæðir krakkar, svona eins og meðal íslendingurinn.
Mér finnst stundum eins og ég sé kominn aftur í Hagaskóla, það er í mjög mörgum tilvikum talað við mann eins og maður sé 14. ára og margar kenslustundir eru kenndar eins og fyrir 14. ára. Í ensku td. áttu allir að skrifa stutta kynningu á sjálfum sér og lesa svo fyrir bekkinn. Ef þú gerðir það ekki myndir þú ekki fá plúsa í kladdann.
En já, ég mun væntanlega ekki skypta fyrr en um áramót. Ástæðan fyrir því að ég fékk ekki að fara í Grant (skólinn á svæðinu sem ég bý á) er sú að þeir voru komnir með of marga skiptinema, eina vonin mína er að það fer einhver Ástrali heim um áramótin og ég fái að koma inn.

Ég er búinn að vera í fótbolltanum, annan daginn minn í skólanum var svo amerískur fótbolti í skólanum mínum og þá langaði mig geðveikt mikið að fara í það, því ég hugsaði, maður getur nú æft fótbollta allstaðar en ekki amerískan fótbolta, en það var því miður of seint fyrir mig að byrja.
Ég er búinn að keppa einu sinni í fótbolltanum, ég er varnamaður í liðinu mínu, en allt kom fyrir ekki og við töpuðum og nei, það var ekki mér að kenna ;)

Svo átti Rick afmæli í dag, 49 ára. Við fórum bara út að borða á litlum ítölskum veitingastað.

Nenni ekki að skrifa meira...
Grétar Jónsson

Vá, tel bara dagana ţegar ég kem heim!

07. september 2006 klukkan 09:35
Jæja, fyrsti skóladagurinn á morgun og fyrsta fótbolltakeppnin á morgun.
Loksins er eithvað að gerast í þessu blessaða skiptinemalífi mínu.
Já, helgin var skemmtileg, Við fórum á ströndina og keyrðum eftir henni, keyrðum meðall annars niður Lief Erikson Street, skoðuðum nokkra staði og skemmtum okkur bara mjög vel.
Svo fórum við í eldfjallinð í Washington ríki, eithvað svaka frægt eldfjall sem sprengdi meira en helminginn ofan af sér og drap 30.000 manns árið 1980. Þetta er núna eithvað svaka túristafyrirbæri, þetta var samt mest eithvað bara myndir af eldgosum og jarðskjálftamælar, eithvað sem maður var búinn að sjá heima. Svo var svolítið fynndið þegar maður fór á stuttheimildarmynd um fjallið þá voru nokkrar klippur úr eldgosinu í Heimaey!
Á mánudaginn var svo "Labor Day" eða verkalýðsdagurinn. USA gat ekki notað 1. maí eins og meirihluti heimsins gerir því það er víst Kommúníst fyrirbæri sem lýðst sko ekki hérna!
Það getur verið svo þæginlegt að búa hérna í Ameríkunni, allar netverslanir opnar fyrir manni og svo ódýrt að það tekur mann 5 mín að panta eithvað og svo færðu það sent heim eftir nokkra daga. Svo gaman líka að ein af stærri vörugeymslum Amazon.com er hérna í næsta ríki svo maður velur bara ókeypis shipping sem þeir segja að taki 10 - 15 vinnudaga en svo kemur það bara þarnæsta dag :)

Jæja Storm Large vótuð út í supernova og bærinn Portland kyppir sér lítið upp við það. Ég hef verið að spurja nokkra krakka sem ég hef hitt hvort þeir fylgist ekki með þessu og þeir hafa bara aldrei heyrt eitt né neitt um þennann þátt. Svo frá mínu sjónarhorni er eins og íslendingar séu þeir einu sem eru að horfa á þennann þátt!
Grétar Jónsson

Dagar 18 - 22

02. september 2006 klukkan 11:36
Lítið búið að gerast hérna, ég er bara búinn að vera að æfa á hverjum degi þar til núna, því núna er 3 daga helgi, útaf einhverjum frídegi sem kallast "Labor day" en hann er fyrsta mánudag í september.
Svo á morgun ætlum við að fara að keyra eithvað um ríkið og hafa voða gaman, daginn eftir ætlum við að skoða eldfjallið í Washington og svo er mánudagurinn enn óákveðinn.
Já, svo er ég búinn að finna mjög heimskuleg lög, þau gylda bara hérna í Oregon, en þannig er mál með vexti að það er bannað að dæla sínu egin bensíni, þú verður að fá dælara skýrteni til þess að meiga vinna sem bensín-dælari. Það á víst að vera stórhættulegt og mjög slysavænt ef óábyrgt fólk dælir bensíni. Þegar maður hugsar meira um þetta held ég að þetta sé bara til að skapa atvinnu, því að á hverri bensínstöð vinna amk. 3 dælarar til að hlaupa á stað og dæla bensíni fyrir mann :) Voðalega er gaman eithvað að taka bensín í vonsku veðri og þurfa ekki að fara út.

Svo svona skemmtileg faq.
Aðeins 2% íbúa Oregon eru svartir, 98% þeirra búa í Portland.
Það er aðeins búið á 2% landi Oregons, restin eru tún sem bændurnir eiga.

Nóg í bili.
Grétar Jónsson

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hvađ er ég líklegastur til ađ vera sendur heim fyrir?

Innskráningar kubbur