Niðurtalningin

Upptalningin

Grétar í Amríku

Ef þú vilt senda mér pakka:
Grétar Jónsson
3728 NE 17th Ave
Portland, OR 97212-1333

Ef þú þarft að hringja:
Gsm : +1 503 989 9894
Heim : +1 503 914 5846

Klukkan hjá mér er -8 GMT
(-7 núna, Daylight Savings)
Ísland er 0 GMT

Amiina?

08. apríl 2007 klukkan 05:03
Jæja..
Þetta Amríska topp módel dæmi kome ekki eins vel út og ég vonaðist til. Jújú margar dömurnar þarnar en fáar fóru á búðarráp.. og allan laugardag seldum við fyrir minna en $150.. búðin er bara opin við "speccial occations" svo vonum að næsta dæmi sem verður í mollinu dragi fleiri viðskiptavini að..

Ég man bara ekki eftir neinu úr vikunni..

Dagurinn í dag var svolítið skemmtilegur..
Ég fór á námskeið í morgun svo ég gæti verið svona "skátaforingi". Ekki samt skáta- en svipað. Í Oregon er svona Outdoor school, svipað eins og þegar maður fór í úlffljótsvatn í 7. bekk. Nema að þetta er í eina viku. Nema hvað, sé ég þá ekki Chloé frá Frakklandi. Hún býr fyrir utan Portland þannig að maður hittir hana sárasjaldan. Svo eftir þetta allt saman þá ákváðum við að fara niðrí bæ og slaka á. Svo við fórum labbandi að leita af sporvagnastöð, enduðum með því að fara inná eithvað bílastæði þar sem þar var fríkeypis rútuferð uppá flugvöll og þaðan tókum við sporvagninn. Svo við fórum niður í bæ og fengum okkur að borða, eftir það fórum við bara á röltið niðrí bæ, eithvað sem ég hef aldrei gert þar sem ég nenni ekki að vera einn og enginn nennir að fara með mér.. en hvað um það, við vorum bara þarna á röltinu í klukkutíma eða svo og uppgvötaði ég margt um Portland. Svo þetta var bara mjög góður dagur.
Ég fann líka tímarit, svona eins og Grapewine, sem er með helstu menninguna, var að blaða eithvað í gegnum það þegar ég sé á tónlistarsíðunni "ICELAND ROCK" Þar var verið að auglýsa að Íslenska bandið Amiina er að spila hérna 10. Apríl! Það segir enn fremur að þetta band túraði með Sigur Rós og spila svipaða gerð af músík, svo auðvitað er planið á að fara :)

anyways..
Grétar Jónsson

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hvað er ég líklegastur til að vera sendur heim fyrir?

Innskráningar kubbur